Núvitund (miðvikudagar – námskeið)

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.

Mánudaginn 22. febrúar hefst námskeiðið Núvitund í Janusi endurhæfingu. Námskeiðið nær yfir átta vikna tímabil 3x í viku. Markmið námskeiðsins er að þjálfa færni í núvitund. Læra leiðir til þess að ná betri stjórn á hugsunum og fá innsýn í líðan sína.

Á miðvikudögum frá kl 13.30 – 15.00 verður fræðsla um núvitund og æfingar vikunnar kynntar, tíminn endar á núvitundaræfingum. Þar að auki verða núvitundaræfingar mánudögum kl. 11:30 -12:00 og föstudögum kl. 13:00- 13:30. Á námskeiðinu verður farið yfir grunntækni núvitundar og hvernig hægt er að flétta núvitund inn í daglegt líf.

  • Mánudaga (æfingar) kl. 11.30-12.00
  • Miðvikudaga (námskeið) kl. 13:30-14:00
  • Föstudaga kl. (æfingar) 13.00-13.30

Mikilvægt er að þátttakendur skuldbindi sig til að sinna núvitundaræfingum á tímabilinu.

Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager.

Umsjónarmaður námskeiðs er Sigríður Pétursdóttir.

Scroll to Top