Myndlist með blandaðri tækni

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.

Fimmtudaginn 25. febrúar hefst námskeiðið Myndlist með blandaðri tækni í Janusi endurhæfingu. Markmiðið er að fá að kynnast hinum ýmsu efnum að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði. 

  • Fimmtudaga kl. 9.00-11.30

Á námskeiðinu verður teikning og myndlist með blandaðri tækni. Leitast verður við að kynnast hinum ýmsu efnum listarinnar og möguleikum þeirra.

Þátttakandi má velja einn hlut af þeim sem hann framleiðir og eiga en aðrir fara í netsölu Janusar endurhæfingar. Vilji þátttakandi kaupa vöru sem framleidd er fyrir markaðinn borgar hann markaðsverð fyrir hana. Netsalan verður í fjáröflunarskyni til að afla tekna fyrir neyðarsjóð sem þátttakendur Janusar endurhæfingar geta sótt um úthlutun úr eftir að fullreynt hefur verið að þeir fá ekki fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi sínu eða hinu opinbera. 

Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Umsjónarmenn verða Þórhildur Kristjánsdóttir og Sigríður Ósk Hannesdóttir.

Scroll to Top