Myndlist með blandaðri tækni

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

9. janúar – 13. febrúar

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur æfa sig í vinnutengdum athöfnum á vinnusvæðum iðjunnar ásamt að æfa sig í mætingum, stundvísi, auka virkni og að geta leitað eftir aðstoð hjá leiðbeinendum  og þáttakendum iðjunnar. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Miðvikudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Suður)

Þetta er opin vinnustofa þar sem það er ekki kennsla í myndlist, þátttakendur hafa frjálsar hendur með þau verk sem þau velja sér, í boði er akrýlmálning, vatnslitir, tússpennar, sandsparls og fleira til að vinna með.  Við bendum þátttakendum að leita til leiðbeinenda eftir aðstoð.

Námskeiðið myndlist með blandaðri tækni nálgast myndlistina á auðveldan hátt þannig að allir geta gert málverk án þess að kunna eða hafa málað áður.  Við nálgumst listina á frjálsan hátt og notum margar aðferðir og gerum tilraunir með litina og blöndum ýmsum efnum saman á málverkið.

Einnig leggjum við áherslu á endurnýtni hinna ýmsu efna og sjáum hvernig við getum nýtt okkur þau í myndlistinni

Námskeiðið er frábrugðið öðrum námskeiðunum að því leiti að allir listmunir sem skapaðir verða á þessu tiltekna námskeiði verða í eigu þátttakenda, nema þeir kjósi að láta listmunina „ganga til góðs“, þ.e.a.s. gefa þá í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Atvinnutengd vinnufærni: Þjálfa sig í að vinna verkefni frá upphafi til enda, auka trúna á sjálfan sig og styrkja sjálfstæð vinnubrögð.

Félagsfærni: Þjálfa þátttakanda í að aðstoða aðra ef þeir geta.

Hand- og verkfærni: Þjálfa fínhreyfingar og samhæfingu hreyfinga, þjálfa sig í að fara eftir leiðbeiningum og ýta undir skapandi hæfileika.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top