Myndlist með blandaðri tækni

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmiðið er að fá að kynnast hinum ýmsu efnum og að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

  • Miðvikudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Suður)

Námskeiðið Myndlist með blandaðri tækni nálgast myndlistina á auðveldan hátt þannig að allir geta gert málverk án þess að kunna eða hafa málað áður.  Við nálgumst listina á frjálsan hátt og notum margar aðferðir og gerum tilraunir með litina og blöndum ýmsum efnum saman á málverkið.

Einnig leggjum við áherslu á endurnýtni hinna ýmsu efna og sjáum hvernig við getum nýtt okkur það í myndlistinni.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top