Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
10. júlí – 14. ágúst
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur æfa sig í vinnutengdum athöfnum á vinnusvæðum iðjunnar ásamt að æfa sig í mætingum, stundvísi, auka virkni og að geta leitað eftir aðstoð hjá leiðbeinendum og þáttakendum iðjunnar. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Mánudaga kl. 10.00 – 12.00 (2. hæð Suður)
Þetta er opin vinnustofa þar sem það er ekki kennsla í myndlist, þátttakendur hafa frjálsar hendur með þau verk sem þau velja sér, í boði er akrýlmálning, vatnslitir, tússpennar, sandsparls og fleira til að vinna með. Við bendum þátttakendum að leita til leiðbeinenda eftir aðstoð.
Námskeiðið myndlist með blandaðri tækni nálgast myndlistina á auðveldan hátt þannig að allir geta gert málverk án þess að kunna eða hafa málað áður. Við nálgumst listina á frjálsan hátt og notum margar aðferðir og gerum tilraunir með litina og blöndum ýmsum efnum saman á málverkið.
Einnig leggjum við áherslu á endurnýtni hinna ýmsu efna og sjáum hvernig við getum nýtt okkur þau í myndlistinni
Námskeiðið er frábrugðið öðrum námskeiðunum að því leiti að allir listmunir sem skapaðir verða á þessu tiltekna námskeiði verða í eigu þátttakenda, nema þeir kjósi að láta listmunina „ganga til góðs“, þ.e.a.s. gefa þá í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.
Atvinnutengd vinnufærni: Þjálfa sig í að vinna verkefni frá upphafi til enda, auka trúna á sjálfan sig og styrkja sjálfstæð vinnubrögð.
Félagsfærni: Þjálfa þátttakanda í að aðstoða aðra ef þeir geta.
Hand- og verkfærni: Þjálfa fínhreyfingar og samhæfingu hreyfinga, þjálfa sig í að fara eftir leiðbeiningum og ýta undir skapandi hæfileika.
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen..