Fyrir hverja: Fyrir alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.
Markmið stuðningshópssins er að öðlast enn frekari meðvitund og þekkingu á einkennum meðvirkni með hlustun og umræðum um meðvirkni í hóp. Að þátttakandinn geti dregið markvisst úr meðvirkri hegðun með framkvæmd verkefna á milli tíma. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Mánudaga 9.00 – 10.00 (4. hæð)
Stuðst verður við bókina Meðvirkni, orsakir, einkenni og úrræði eftir höfundinn Piu Mellody. Umræður og hlustun er mikilvægur hluti stuðningshópsins.
Í stuðningshópnum verða umræður og heimaverkefni gefin út frá eftirfarandi viðfangsefnum:
- Upplifa heilbrigða sjálfsvirðingu.
- Setja heilbrigð mörk.
- Viðurkenna og tjá eigin raunveruleika.
- Sinna þörfum sínum og löngunum á fullorðinsaldri.
- Upplifa og tjá veruleika sinn af hófsemi.
Námskeiðið er lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Sigríður Anna Einarsdóttir.