Matur er mannsins megin

9. nóvember – 14. desember

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist manneldismarkmiðum og grunnhugtökum í næringarfræði. Auki vitund og vitneskju sína um hollustu matvæla og hvernig hægt er að borða hollt, hagkvæmt og í núinu. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Miðvikudaga kl. 10.00 – 12.00 (4. hæð)

Fjallað verður m.a um eftirfarandi hluti:

– Hugtök í næringarfræði

– Manneldismarkmið

– Lesa á umbúðir

– Njóta matarins í núinu

– Matarsóun

– Uppskriftir

– Fjármál og innkaup

– Hagkvæmni í eldamennsku

Einnig verður stefnt að því að elda saman rétti sem þátttakendur velja að elda.

 Námskeiðið er lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Elsa Guðrún Sveinsdóttir, Hrefna Þórðardóttir og Sigríður Pétursdóttir.

Scroll to Top