Listmunir úr steypu

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að kynna steypuna og þau fjölbreyttu listform sem hún býður upp á. Einnig að skapa tækifæri til að vinna með öðrum og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði. Við stefnum að því að framleiða listmuni sem prýtt geta garðinn hvort sem er heima eða við sumarbústað  eða í grillveislu.

  • Þriðjudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Vestur)

Á námskeiðinu sýnum við ýmsar aðferðir og möguleika á vinnslu listmuna úr steypu.  Steypan gefur okkur endalausa möguleika á hönnun og gaman að láta ímyndunaraflið ráða för og gera tilraunir með hönnun á því sem okkur dettur í hug.

Við byrjum á að búa til allskyns fígúrur úr steypu þær málaðar og skreyttar, þessir munir eru tilvaldir sem skrautmunir í garðinn.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Sigríður Ósk Halldórsdóttir, Þórhildur Kristjánsdóttir og Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top