Listasmiðja og undirbúningur jóla

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið með námskeiðinu er að gefa þáttakendum tækifæri til að vinna í hóp og taka þátt í framleiðslu á ýmsun munum.  Lögð er áhersla á samvinnu innan hópsins.

  • Miðvikudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð Suður)

Á námskeiðinu verður kennt að búa til margskonar hluti og notast verður við hin ýmsu efni.

Búnir verða til Jólakransar, aðventukransar, fuglahús, umbúðir fyrir uppkveikikubba, kertakrukkur ofl.  Notast verður við hin ýmsu efni t.d. greinar, krukkur, trölladeig, þæfða ull og pappír.  Áhersla er lögð á endurnýtingu efna sem til falla.

Í hverjum tíma verður unnið með fyrirfram ákveðið verkefni og vinnuferlinu við hvert verkefni skipt niður á hópinn.  Leitast verður við að finna út bestu leiðina við framleiðslu hver hlutar.

Framleitt verður t.d. kerti, jólakransar, jólaseríur ofl.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top