Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
Markmið með námskeiðinu er að gefa þáttakendum tækifæri til að vinna í hóp og taka þátt í framleiðslu á ýmsun munum. Lögð er áhersla á samvinnu innan hópsins.
- Miðvikudaga kl. 9.00 -11.30 (2. hæð suður)
Á námskeiðinu verður kennt að búa til margskonar hluti og notast verður við hin ýmsu efni. Í hverjum tíma verður unnið með fyrirfram ákveðið verkefni og vinnuferlinu við hvert verkefni skipt niður á hópinn. Leitast verður við að finna út bestu leiðina við framleiðslu hver hlutar. Framleitt verður t.d. kerti, jólakransar, jólaseríur, jólaskraut, fuglahús, kortagerð ofl.
Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.
Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.
Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Þórhildur Kristjánsdóttir og Sigríður Ósk Hannesdóttir.