Lampar, fuglahús og kransar

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Þátttakendur æfa sig í vinnutengdum athöfnum á vinnusvæðum iðjunnar ásamt að æfa sig í mætingum, stundvísi, auka virkni og að geta leitað eftir aðstoð hjá leiðbeinendum og þátttakendum iðjunnar. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Miðvikudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð – Vestur)

Á þessu námskeiði er þátttakendum frjálst að skipta á milli verkefna og vera með nokkur í gangi hverju sinni. Verkefnin sem eru í boði er að hanna lampa, fuglahús og kransa.

Lampagerð: Þar munum við hnýta saman greinar sem verður lampagrunnurinn. Í framhaldi af því útbúum við skerm úr ýmsum efniviði sem verður svo festur á greinarnar ásamt öðrum útfærslum.

Hurðakransar: Hannaðir verða fallegir hurðakransar úr greinum sem skreyttir verða með klipptum og máluðum könglum sem munu þá líta út eins og blóm. Einnig munum við þróa fleiri áhugaverðar hugmyndir sem okkur kann að detta í hug.

Fuglafóðurhús: Við endurnýtum plastflöskur og hönnum fuglahús með því að líma á flöskurnar trjágreinar sem við síðan skreytum með máluðum könglum. Einnig getum við málað fuglahúsin með akrýlmálningu ef áhugi er fyrir því.

Atvinnutengd vinnufærni: Þjálfa sig í að vinna verkefni frá upphafi til enda, þjálfa sig í að vera hluti af verkferli t.d. við framleiðslu, auka trúna á sjálfan sig, styrkja sjálfstæð vinnubrögð, auka úthald til vinnu bæði andlega og líkamlega, finna styrkleika sína og vinna með þá og auka getu og úthald til að sinna verkefnum sem höfða ekki til þeirra.

Félagsfærni: Vinna með vinnutengd samskipti t.d. hvað er viðeigandi að ræða um á vinnusvæði, skiptast á upplýsingum á vinnusvæði tengt verkefninu, koma skilaboðum áfram, spjalla við aðra þátttakendur eins og taka þátt í umræðuefni á vinnusvæði, o.s.fr., þjálfa þáttakanda í að aðstoða aðra ef þeir geta, auka félagslega færni, – lesa í félagslegar aðstæður.

Hand- og verkfærni: Auka og styrkja verkfærni, vinna með líkamsbeitingu, samhæfingu hreyfinga, fínhreyfingar og skynáreiti, þjálfa sig í að fara eftir leiðbeiningum og ýta undir skapandi hæfileika.

Þátttakendur mega eiga þá listmuni sem þeir gera á námskeiðinu. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.  Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið er opinn/lokaður hópur og verður (ekki( hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen, Sigríður Hannesdóttir og Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top