Jóga og Jóga Nidra djúpslökun

16. ágúst – 22. september

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist og læri að upplifa töfra Jóga og Jóga Nidra djúpslökunar. Liðkandi og styrkjandi Hatha Jóga æfingar og Jóga Nidra djúpslökun getur gefið manni ró og betri tengingu við líkama, huga og sál. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Þriðjudaga kl. 11.45 – 12.45 (4.  hæð)
  • Fimmtudaga kl. 11.45 – 12.45 (4. hæð)

Tímarnir byggja á Jóga æfingum með áherslu á liðkandi og styrkjandi æfingar, ásamt öndun fyrri hluta tímans og Jóga Nidra djúpslökun í seinni hluta tímans

Námskeiðið er fyrir þátttakendur Janusar endurhæfingar og hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Gott er að vera í  þægilegum fötum sem gefa eftir

Mikilvægt er að mæta á réttum tíma. Salnum er lokað 5 mínútum eftir að tími hefst.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Berglind Ásgeirsdóttir og Sólveig Gísladóttir.

Scroll to Top