Jóga og Jóga Nidra djúpslökun

4. janúar

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur kynnist og læri að upplifa töfra Jóga og Jóga Nidra djúpslökunar. Liðkandi og styrkjandi Vinyasa Jóga æfingar og Jóga Nidra djúpslökun getur gefið manni ró og betri tengingu við líkama, huga og sál.. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Miðvikudaginn 4. janúar kl. 11:00 – 12:00 (4. hæð)

Tímarnir byggja á Jóga æfingum með áherslu á liðkandi og styrkjandi æfingar, ásamt öndun fyrri hluta tímans og Jóga Nidra djúpslökun í seinni hluta tímans

Námskeiðið er fyrir þátttakendur Janusar endurhæfingar og hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Gott er að vera í  þægilegum fötum sem gefa eftir

Mikilvægt er að mæta á réttum tíma. Salnum er lokað 5 mínútum eftir að tími hefst

Námskeiðið er eitt skipti. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Sigríður Pétursdóttir.

Scroll to Top