Hugræn atferlismeðferð (HAM) – Hópnámskeið við kvíða og þunglyndi

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar. Opið er fyrir skráningu en umsjónarmenn munu forgangsraða inn á námskeiðið.

16. ágúst – 22. september

Markmið námskeiðsins er að auka færni til að kljást við meðaldjúpt og vægt þunglyndi og kvíða. Bæta almenna líðan, til að fyrirbyggja geðrænan vanda og viðhalda bata. Kenna aðferðir sem stuðla að auknu geðheilbrigði. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Þriðjudaga kl. 13.00 – 15.30 (4. hæð)
  • Fimmtudaga kl. 9.00 – 11.30 (4. hæð)
  •  Vinnustofa fimmtudaga kl. 11.40 – 12.40 (3. hæð – Holtasóley)

Kynntar verðar kjarnahugmyndir um hugræna atferlismeðferð. Kynntar verða aðferðir HAM sem samkvæmt rannsóknum virka vel á vægt og meðaldjúpt þunglyndi og kvíða.

Aðallega er unnið með virkni og neikvæðar hugsanir. Í námskeiðinu kortleggja þáttakendur vandamál sín og setja sér markmið  í samvinnu  við námskeiðshaldara. 

Í námskeiðinu er krafa um virka þáttöku í tíma og og að einstaklingar sinni krefjandi heimavinnu og vinni einstaklings og hópverkefni í tímanum.

Ætlast er til að mætt sé í alla tímana annars er hætta á að þátttaka viðkomandi verði endurskoðuð og að honum verði vísað frá hóp ef hann mætir ekki tvö skipti í röð.

Í námskeiðinu verða unnin HAM verkefni á ýmsa vegu og í samvinnu við aðrar fagstéttir innan Janus endurhæfingu. Námskeiðið er ætlað að vera hagnýt meðferð og krefjandi en einnig er lagt upp með að hún sé skemmtileg og lífleg.

Boðið verður upp á vinnustofu ef þátttakandi hefur verið fjarverandi auk frekari stuðnings við verkefni.

Námskeiðið er lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Salóme Halldórsdóttir, Edda Rán Jónasdóttir og Linda Ólafsdóttir.

Scroll to Top