Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
- Mánudaga kl. 10.00 – 11.00 (World Class / Salur 4)
- Miðvikudaga kl. 10.00 – 11.00 (World Class / Salur 4)
Hóptímar undir handleiðslu sjúkraþjàlfara og einstaklingsmiðaðar leiðbeiningar í æfingum ef þörf er á. Í tímunum vinnum við með æfingar fyrir allan líkamann sem styrkja okkur inn í daglegt líf og bæta þolið. Við leggjum àherslu á að allir mæti sér þar sem þeir eru staddir en séu jafnframt tilbúnir að prófa nýja hluti og ögra sér í æfingum.
Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Agnes Ósk Snorradóttir og Kara Elvarsdóttir.