Hönnun tækifæriskorta

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að bjóða upp á streitulosandi handavinnu í notalegu umhverfi og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

  • Mánudaga kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð)
  • Miðvikudaga kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð)

Á námskeiðinu verða búin til falleg gjafakort. Þar munum við nota endurunninn pappír, þurrkuð blóm, lauf, málningu og fleira til að hanna kortin. Hægt er að bæta formum á kortin með túss eða mála blóm og líma þau á kortin.

Aukaverkefni er að einnig útbúa umslag og pakka korti og umslagi inn í sellófan.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Sigríður Hannesdóttir, Þórhildur Kristjánsdóttir og Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top