Hatha Jóga

Markmið námskeiðsins er að öðlast þekkingu og reynslu á jóga, með Jóga ástundun. Jóga er leið til þess að öðlast ró og tengingu við sjálfa/n sig, líkama, huga og öndun, liðkandi og styrkjandi æfingum og Jóga Nidra slökun.

  • Þriðjudaga kl. 11.45 – 12.45 (4. hæð)

Námskeiðið byggir á Hatha jóga. Gerðar verða jógateygjur og léttar styrkjandi æfingar með áherslu á öndun sem stuðlar að ró og núvitund. Tíminn endar á 15 mínútna Jóga Nidra slökun.

Námskeiðið er fyrir þátttakendur Janusar endurhæfingar og hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Gott er að vera í  þægilegum fötum sem gefa eftir.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Berglind Ásgeirsdóttir og Sólveig Gísladóttir.

Scroll to Top