Handverk fyrir hádegi

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins var að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn í skiltagerðinni og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins. Á námskeiðinu munu þátttakendur ljúka við hin ýmsu verkefni sem eru ókláruð frá fyrri námskeiðum ásamt því að taka þátt í undirbúningi fyrir ný námskeið.

Verkefnin eru til dæmis:  Steypuverkefni, kransar, saumaverkefni, undirbúningur pappavinnslu, tálgunarverkefni ofl. 

  • Mánudag kl. 9.00 – 11.30 og  kl.13.00 – 15.30 (2. hæð, Vestur)
  • Þriðjudag kl. 9.00 – 11.30 og kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð, Vestur)
  • Miðvikudag kl. 9.00 – 11.30 og kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð, Vestur)
  • Fimmtudag kl. 9.00 – 11.30 og kl. 13.00 – 15.30 (2. hæð, Vestur)

Stefnum á að framleiða vörur sem tilheyra sumarnetsölu, hvort sem það eru skilti sem prýða garðinn, sumarbústaðinn eða grillveisluna. Aðal markmið námskeiðsins er að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn í skiltagerðinni og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Þórhildur Kristjánsdóttir. Halldór Bjarki Ipsen og Sigríður Ósk Hannesdóttir

Scroll to Top