HAM við kvíða og þunglyndi

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Þriðjudaginn 23. febrúar hefst námskeiðið HAM við kvíða og þunglyndi sem er 6 vikna námskeið sem verður á þriðjudögum og fimmtdögum. Boðið verður upp á vinnustofu á fimmtud. ef þátttakandi hefur verið fjarverandi auk frekari stuðnings við verkefni.

Í námskeiðinu kynnast þátttakendur kjarnahugmyndum um uppbyggingu HAM meðferðar og aðferðum í þeirri meðferð sem nýjustu rannsóknir styðja að virki við þunglyndi og kvíða. Í námskeiðinu kortleggja þáttakendur vandamál sín og setja sér markmið í samvinnu við námskeiðshaldara, unnið verður með virkni og neikvæðar hugsanir.

Markmið námskeiðsins er að auka færni til að kljást við meðaldjúpt og vægt þunglyndi og kvíða. Bæta almenna líðan, til að fyrirbyggja geðrænan vanda og viðhalda bata og kenna aðferðir sem stuðla að auknu geðheilbrigði.

  • Þriðjud. og fimmtud. kl. 09:00-11:30 (4. hæð)
  • HAM vinnustofa – fimmtudaga kl.13.00 – 14.00 (3. hæð Holtasóley)

Í námskeiðinu er krafa um virka þáttöku í tíma og að einstaklingar sinni krefjandi heimavinnu og vinni einstaklings og hópverkefni í tímum. Í námskeiðinu verða unnin HAM verkefni á ýmsa vegu og í samvinnu við aðrar fagstéttir innan Janusar endurhæfingar. Námskeiðið er ætlað að vera hagnýt meðferð og krefjandi en einnig er lagt upp með að hún sé á köflum skemmtileg, áhugaverð og lífleg.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Edda Rán, Lena og Salóme.

Scroll to Top