Grunnur að daglegu lífi 2

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

7. nóvember – 12. desember

Markmið námskeiðsins er að fræða og ræða um þá grunnþætti í daglegu lífi sem mikilvægt er að hafa í huga til að auka lífsgæði og jafnvægi. Fræðslan miðar að því aðstoða þátttakendur í að takast á við þær breytingar sem endurhæfingin felur í sér með umræðum og verkefnum. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Mánudaga kl. 11.00 – 13.00 (4. hæð)

Áhersla er á að fræða um þá þætti sem ýta undir heilsueflingu (eins og eigin umsjá, að takast á við streitu, forgangsraða og geta skipulagt) Einnig verður lögð áhersla á að fræða um þá þætti sem hægt er að nýta til að auka sjálfstæði í daglegu lífi eins og að vera í meðvitund um og t.d. hlutverk, gildi, styrkleika, áhugamál, daglegt jafnvægi/daglega rútínu  og stefnu. Farið verður í að kynna markmiðasetningu í tengslum við þessi atriði og einnig mikilvægi  stefnu og seglu.

Rætt verður um grunnþætti daglegs lífs og hvað  endurhæfing feli í sér út frá mikilvægum atriðum eins og t.d. hlutverk, gildi, styrkleika, áhugamál, daglegt jafnvægi/daglega rútínu  og stefnu. Farið verður í að kynna markmiðasetningu í tengslum við þessi atriði og einnig mikilvægi  stefnu og seglu.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Lena Rut Olsen og Sigrún Ólafsdóttir.

Scroll to Top