12. júlí – 16. ágúst
Markmið námskeiðsins er að vekja athygli á því hversu góð áhrif það hefur á andlega og líkamlega heilsu að vera úti og hreyfa sig. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Föstudaga kl. 10.00 – 11.00 (Andyri Skúlagötu)
Gott er að brjóta upp daginn með stuttum gönguferðum. Gengið verður í nágrenni Janusar endurhæfingar og þátttakendur ákveða hvaða leið verður farin hverju sinni í samráði við námskeiðshaldara. Gönguhraði sem hentar hverjum og einum.
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Linda Ólafsdóttir og Halldór Bjarki Ipsen.