Góðar svefnvenjur

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

6.júní – 27.júní

Markmið námskeiðsins er að þátttakandi verði meðvitaðri um svefn og svefnvenjur. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Fimmtudagar kl. 13:00 – 15:00 (4.hæð)

Markmið námskeiðsins er að fræða þátttakendur um svefn og mikilvægi þess að hafa góðar svefnvenjur. Lögð er áhersla á umræður og verkefnavinnu. Nýtt verða verkefni úr Hugrænni atferlismeðferð.

Mikilvægt er að mæta í alla tímana þar sem fræðsla fyrri tíma er grunnur að þeim næsta.

Námskeiðið verður haldið í 4 skipti. Þátttakakendur eru hvattir til að vera virkir á námskeiðinu.

Námskeiðið er lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Salóme Halldórsdóttir og Elsa Sveinsdóttir.

Scroll to Top