Gerum upp húsgögn (f. hádegi miðvikudaga)

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Miðvikudaginn 24. febrúar hefst námskeiðið Gerum upp húsgögn. Á námskeiðinu er endurnýting í hávegum höfð. Við tökum notuð húsgögn og gefum þeim „nýtt líf“ með því að mála í alls konar stíl og skrifa eða myndskreyta með alls konar stenslum og veggfóðri ef óskast. Þátttakendur velja sér húsgögn sem verða á námskeiðinu, stór eða smá, og fá að pússa eftir þörfum og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín.

Vörurnar verða síðan seldar og mun allur ágóðinn af þeim renna í Styrktarsjóð Janusar endurhæfingar og nýtast þeim sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

  • Miðvikudaga kl. 9.00 – 11.30 og kl. 13.00 – 15.30.
  • Fimmtudaga kl. 9.00 – 11.30

Markmið námskeiðsins er að læra að endurnýja notuð eða veðruð húsgögn og á sama tíma leyfa listrænum hæfileikum þínum að blómstra. Einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins og sköpunargleði.

Námskeiðið er opinn hópur og geta þátttakendur skráð sig hvenær sem er á tímabilinu. Skráning fer fram í samvinnu við tengiliði og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Þórhildur Kristjánsdóttir og Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top