Ganga

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að vekja athygli á því hversu góð áhrif það hefur á andlega og líkamlega heilsu að vera úti og hreyfa sig. Einnig er gott að brjóta upp daginn með stuttum gönguferðum. Gengið verður í nágrenni Janusar endurhæfingar og þátttakendur ákveða hvaða leið verður farin hverju sinni í samráði við námskeiðshaldara. Gönguhraði sem hentar hverjum og einum. Hópurinn hittist inni í anddyrinu á 1.hæð á Skúlagötu 19.

  • Fimmtudaga kl. 11:00-12:30 (Anddyri)

Skráning fer fram í samvinnu við tengiliði og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi er Elsa Sveinsdóttir 

Scroll to Top