Frjáls sem fuglinn

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins, er að þátttakendur Janusar endurhæfingar, þjálfist í að geta tjáð sig fyrir framan aðra, þannig að það losni sem mest við óttann og nái að halda ró sinni og vera ekki of upptekið af sjálfum sér á meðan verið er að tala.

Þriðjudaga kl. 9.00 – 10.00 (3. hæð – Holtasóley)

Á námskeiðinu verður m.a. farið í eftirfarandi viðfangsefni:

  • Líkamstjáningu
  • Að halda athygli
  • Framburður
  • Slökun
  • Öndun
  • Æfingar í framsögn

Námskeiðið mun fyrst og fremst innihalda æfingar í að standa fyrir framan þátttakendur og tjá sig. Einnig verður stutt fræðsla, umræður og heimavinna.

Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Námskeiðið er lokaður hópur og því ekki hægt að skrá sig í það á miðju tímabili. Námskeiðið telur til mætinga.

Leiðbeinandi verður  Sigríður Anna Einarsdóttir

Scroll to Top