Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
Markmið námskeiðsins er að vekja áhuga, læra frisbígólf og auka virkni auk þess að skemmta sér. Einnig að æfa sig að vera í kringum annað fólk og þjálfa þar með félagsfærni.
- Fimmtudaga kl. 13.00 – 14.00 (Klambratún)
Farið verður á Klambratún og spilað frisbígólf.
Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Elín Arna Ingólfsdóttir og Sigríður Pétursdóttir.