Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
Markmið fræðslunnar er að hjálpa þátttakendum að kynnast mikilvægum málefnum. Einnig að undirbúa þá fyrir sálfræðimeðferð, veita þeim innsæi, tæki og tól sem hugsanlega minnkar þörf á sálfræðimeðferð.
- Föstudagur kl. 11.00 – 12.00 (3. hæð – Holtasóley)
Í hverjum tíma verður fjallað um eitt efni, þar verður umfjöllun um rannsóknir, tekin dæmi sem eiga við þátttakendur og þeir fengnir til að ræða um sitt eigið líf í samhengi. Einnig verður hvatt til þess að setja sér eitt markmið tengt fræðslunni.
Eftirfarandi má sjá grófa dagskrá;
- Fræðsla um svefnvenjur.
- Fræðsla um skjáfíkn.
- Fræðsla um kvíða.
- Fræðsla um áhrif útiveru og náttúru.
- Fræðsla um þunglyndi.
- Fræðsla um gildi
Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Gunnar Örn Ingólfsson.