Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
14. apríl – 26. maí
Markmið fræðslunnar er að hjálpa þátttakendum að kynnast mikilvægum málefnum. Einnig að undirbúa þá fyrir sálfræðimeðferð, veita þeim innsæi, tæki og tól sem hugsanlega minnkar þörf á sálfræðimeðferð. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Föstudaga kl. 11.00 – 12.00
Í hverjum tíma verður fjallað um eitt efni, þar verður umfjöllun um rannsóknir, tekin dæmi sem eiga við þátttakendur og þeir fengnir til að ræða um sitt eigið líf í samhengi. Einnig verður hvatt til þess að setja sér eitt markmið tengt fræðslunni.
- Fræðsla um svefnvenjur – 14/04
- Fræðsla um kvíða – 21/04
- Fræðsla um skjáfíkn – 28/04
- Fræðsla um þunglyndi – 12/05
- Fræðsla um áhrif náttúruna – 19/05
- Fræðsla um markmið – 26/05
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Gunnar Örn Ingólfsson.