Fræðsla með sálfræðilegu ívafi

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

20. janúar – 17. febrúar

Markmið fræðslunnar er að hjálpa þátttakendum að kynnast mikilvægum málefnum. Einnig að undirbúa þá fyrir sálfræðimeðferð, veita þeim innsæi, tæki og tól sem hugsanlega minnkar þörf á sálfræðimeðferð. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Föstudaga kl. 11.00 – 12.00 (4. hæð)

Í hverjum tíma verður fjallað um eitt efni, þar verður umfjöllun um rannsóknir, tekin dæmi sem eiga við þátttakendur og þeir fengnir til að ræða um sitt eigið líf í samhengi. Einnig verður hvatt til þess að setja sér eitt markmið tengt fræðslunni.

  • Fræðsla um svefnvenjur – 20. janúar
  • Fræðsla um kvíða – 3. febrúar
  • Fræðsla um skjáfíkn – 10. febrúar
  • Fræðsla um þunglyndi – 17. febrúar

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Gunnar Örn Ingólfsson.

Scroll to Top