Dansgleði

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmiðið námskeiðsins er að vekja athygli á því hversu góð áhrif það hefur á andlega og líkamlega heilsu að hreyfa sig. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

Miðvikudaga kl. 10.00 – 11.00 (World Class í Laugum– Sal nr. 4)

Í þessum tíma skemmtum við okkur í dansinum við skemmtilega tónlist, kennd verða grunnspor í salsa, Bachata og einnig verða dansar í zumbastíl og Bollywood.  Tími sem hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.

Æfingarnar fara fram í lokuðum sal nr. 4 í World Class Laugum.

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Þórhildur Kristjánsdóttir.

Scroll to Top