DAM – tilfinningastjórn

Fyrir hverja: Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa átt erfitt með að takast á við sársaukafullar tilfinningar á hjálplegan hátt. Færninþjálfunin er hugsuð fyrir þá sem upplifa mjög sterkar og óstöðugar tilfinningar- einstaklinga sem eru með mikla tilfinningalega viðkvæmni og sveiflast auðveldlega í skapi. Þeir sem eiga erfitt með að átta sig á eigin tilfinningum geta einnig notið góðs af færniþjálfuninni.

Færniþjálfunin felur í sér fræðslu um tilfinningar, hvað þær heita, hvert hlutverk þeirra er og hvernig þær hafa áhrif á líkama okkar og hegðun. Kenndar verða aðferðir til þess að auka þol við í erfiðum tilfinningum. Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að skilja betur þær tilfinningar sem þeir upplifa, draga úr tilfinningalegri þjáningu og tempra tilfinninga viðkvæmni.

  • Mánudaga kl. 13.00 – 15.30 (3. hæð – Tölvurými)

Tilfinningastjórn er einn fjögurra færniþátta úr Díalektískri atferlismeðferð (DAM). Færniþjálfunin felur í sér fræðslu um tilfinningar, hvað þær heita, hvert hlutverk þeirra er og hvernig þær hafa áhrif á líkama okkar og hegðun. Kenndar verða aðferðir til þess að auka get util að þola við í óþægilegum tilfinningum. Óski þátttakandi eftir því að taka þátt í færniþjálfuninni skuldbindur hann sig til þess að vinna heimavinnu. Færniþjálfunin byggist á virkri þáttöku meðlima hópsins.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Jón Hjalti Brynjólfsson og Lena Rut Olsen.

Scroll to Top