Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.
Færniþjálfunin felur í sér fræðslu um tilfinningar, hvað þær heita, hvert hlutverk þeirra er og hvernig þær hafa áhrif á líkama okkar og hegðun. Kenndar verða aðferðir til þess að auka þol við í erfiðum tilfinningum. Markmið námskeiðsins er að hjálpa þátttakendum að skilja betur þær tilfinningar sem þeir upplifa, draga úr tilfinningalegri þjáningu og tempra tilfinninga viðkvæmni.
- Miðvikudaga kl. 9.00 – 12.00 (4. hæð)
Tilfinningastjórn er einn fjögurra færniþátta úr Díalektískri atferlismeðferð (DAM). Færniþjálfunin felur í sér fræðslu um tilfinningar, hvað þær heita, hvert hlutverk þeirra er og hvernig þær hafa áhrif á líkama okkar og hegðun. Kenndar verða aðferðir til þess að auka get util að þola við í óþægilegum tilfinningum. Óski þátttakandi eftir því að taka þátt í færniþjálfuninni skuldbindur hann sig til þess að vinna heimavinnu. Færniþjálfunin byggist á virkri þáttöku meðlima hópsins. Mikilvægt er að mæta í alla tíma, ef að þátttakandi missir úr tvö skipti í röð eða þrjú skipti í heildina þá þarf að afskrá viðkomandi af námskeiðinu.
Athugið að í upphafi hvers tíma verða gerðar núvitundaræfingar.
Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa átt erfitt með að takast á við sársaukafullar tilfinningar á hjálplegan hátt. Færninþjálfunin er hugsuð fyrir þá sem upplifa mjög sterkar og óstöðugar tilfinningar- einstaklinga sem eru með mikla tilfinningalega viðkvæmni og sveiflast auðveldlega í skapi. Þeir sem eiga erfitt með að átta sig á eigin tilfinningum geta einnig notið góðs af færniþjálfuninni
Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Ekki er hægt að skrá sig í HAM námskeið eða önnur DAM færninámskeið samhliða námskeiðinu, að undanskilinni DAM núvitund. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Mikilvægt er að mæta í alla tíma, ef að þátttakandi missir úr tvö skipti í röð eða þrjú skipti í heildina þá þarf að afskrá viðkomandi af námskeiðinu.
Leiðbeinendur verða Elísabet Þórðardóttir, Alma Rún Vignisdóttir og Elsa Sveinsdóttir.