DAM færnihópur – Streituþol

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar sem hafa lokið DAM færniþjálfun í núvitund og tilfinningastjórn eða annað sambærilegt.

9. nóvember – 15. desember

Markmið námskeiðsins er að gangast við ástandinu eins og það er (radical acceptance). Læra að nota streituþolsfærni á erfiðum stundum. Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa átt erfitt með að takast á við erfiðar og sterkar tilfinningar á hjálplegan máta. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna.

  • Miðvikudaga kl. 12.30 – 14.30 (4. hæð)

Streituþol er einn fjögurra færniþátta úr Díalektískri atferlismeðferð (DAM). Færniþjálfunin er eins konar skyndihjálp þar sem kenndar eru aðferðir til að sefa erfiðar tilfinningar um stundar sakir svo hægt sé að beita hjálplegri leiðum í framhaldi. Gerðar verða núvitundaræfingar og verkefni í tímum.

Streituþolsfærni skiptist í tvo þætti annars vegar að þola við í erfiðum aðstæðum og tilfinningum án þess að gera þær verri og hins vegar að læra að gangast við raunveruleikanum eins og hann er í raun og veru.

Færniþjálfunin byggist á virkri þáttöku meðlima hópsins.

Skráning fer fram í gegnum námskeiðshaldara.

Námskeiðið er lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Linda Ólafsdóttir og Lena Rut Olsen.

Scroll to Top