DAM færnihópur- Samskiptafærni

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Námskeiðið er gagnlegt fyrir flest alla en gagnast einstaklega vel fyrir þá sem hafa gengið í gegnum erfiða lífsreynslu og áföll. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist betri samskiptafærni með því að taka eftir samskiptavanda og nota DAM færniþætti til breytinga.

·         Miðvikudaga kl. 9:00 – 12:00 (4. hæð)

Lögð er áhersla á að þjálfa og auka færni í samskiptum. Til að ná fram markmiðum sínum þurfa þátttakendur að þekkja og tileinka sér færniþætti og að þjálfast í sjálfstyrkingu og ákveðni. Óski þátttakandi eftir því að taka þátt í færniþjálfuninni skuldbindur hann sig til þess að gera lífsfærniverkefni milli tíma. Færniþjálfunin byggist á virkri þátttöku meðlima hópsins.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Ekki er hægt að skrá sig í HAM námskeið eða önnur DAM færninámskeið samhliða námskeiðinu, að undanskilinni DAM núvitund. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Mikilvægt er að mæta í alla tíma, ef að þátttakandi missir úr tvö skipti í röð eða þrjú skipti í heildina þá þarf að afskrá viðkomandi af námskeiðinu.

Leiðbeinendur verða Elísabet Þórðardóttir, Elsa Sveinsdóttir og Lena Rut Olsen

Scroll to Top