Búum til skilti og veggskraut

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Stefnum á að framleiða vörur sem tilheyra netsölu, hvort sem það eru skilti sem prýða garðinn, sumarbústaðinn eða heimilið. Aðal markmið námskeiðsins er að gefa sköpunargleðinni lausan tauminn í skiltagerðinni og einnig að skapa tækifæri til að vinna í samfélagi við aðra og virkja áhugahvöt hvers og eins.

  • Þriðjudagar kl. 9.00 – 11.30 (2. hæð, vestur)

Á námskeiðinu verða búin til skilti úr viðar pallettum og plöttum. Þátttakendur fá að hanna ýmist húsnúmers skilti, sumarbústaða skilti eða heimilis skilti/veggskraut. Notast má við servíettur og Mod Podge lím. Mikið úrval er til af akrýl málningu  og stenslum til að skrifa og myndskreyta með.

Listmunir sem skapaðir verða á námskeiðinu verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar. Allur ágóðinn af sölunni rennur beint í sjóðinn og nýtist þannig þeim þátttakendum sem eru í fjárhagslegri neyð, sjá nánar á heimasíðu Janusar endurhæfingar.

Þátttakendur mega velja og eiga einn listmun á önn af öllum þeim listmunum sem þeir framleiða í iðjunni, á meðan að þeir eru í endurhæfingunni og taka þátt í listmunasköpun innan Janusar endurhæfingar. Allir aðrir listmunirnir þátttakenda „ganga til góðs“, þ.e.a.s. verða seldir í netsölu Styrktarsjóðs Janusar endurhæfingar.

Námskeiðið verður opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Halldór Bjarki Ipsen.

Scroll to Top