Aukin vellíðan með jákvæðri sálfræði

Fyrir alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.

13. apríl – 25. maí

Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir þátttakendum hugtök og verkfæri sem geta hjálpað þeim að auka vellíðan sína. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar. 

  • Fimmtudaga kl. 13.00 – 15.00 (4. hæð)

Helstu atriði sem fjallað verður um;

  • Jákvæð sálfræði
  • Hamingja og vellíðan
  • Tilfinningar
  • Grósku- og festuhugarfar
  • Þrautseigja og seigla
  • Tilgangur og merking
  • Bjartsýni
  • Þakklæti
  • Félagsleg tengsl
  • Flæði
  • Núvitund
  • Góðvild og samkennd
  • Styrkleikar

Námskeiðið mun innihalda fræðslu, myndbönd og verkefni sem bæði verða unnin í tíma og heimaverkefni.

Námskeiðið er lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Elsa Guðrún Sveinsdóttir og Sigríður Pétursdóttir.

Scroll to Top