Fyrir alla þátttakendur Janusar endurhæfingar.
7. nóvember – 5. desember
Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir þátttakendum hugtök og verkfæri sem geta hjálpað þeim að auka vellíðan sína. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Mánudaga kl. 13.00 – 15.30 (4. hæð)
Helstu atriði sem fjallað verður um;
– Jákvæð sálfræði
– Hamingja og vellíðan
– Tilfinningar
– Grósku- og festuhugarfar
– Þrautseigja og seigla
– Tilgangur og merking
– Bjartsýni
– Þakklæti
– Félagsleg tengsl
– Flæði
– Núvitund
– Góðvild og samkennd
– Styrkleikar
Námskeiðið mun innihalda fræðslu, myndbönd og verkefni sem bæði verða unnin í tíma og heimaverkefni.
Námskeiðið er lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Elsa Guðrún Sveinsdóttir og Sigríður Pétursdóttir.