Athyglisbrestur: Miðlum hvert til annars

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar sem hafa verið greindir með athyglisbrest. Fyrir þá sem voru á Athyglisbrest miðlum hvert til annars í lotu 4 og vilja fá meiri stuðning og einnig þá sem hafa ekki verið áður.

Markmiðið með hópnum er að þátttakendur fái fræðslu og svo  stuðning hver af öðrum og auki innsæi sitt gagnvart athyglisbrestinum og lífinu með hann í farteskinu. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna JE.

  • Þriðjudaga kl. 13.00 – 15.00 (4. hæð)

Stuðningshópurinn Athyglisbrestur – miðlum hvert til annars sem verður í 6 skipti fyrir þátttakendur sem hafa verið greindir með athyglisbrest. Stuðningshópurinn byggist á fræðslu og umræðum. 

Ef viðkomandi er ekki með fyrirliggjandi greiningu en grunar sterklega að hann sé með athyglisbrest og langar að taka þátt, skal hafa samband við umsjónarmann námskeiðs sem er Sigríður Anna Einarsdóttir. Ákvörðun tekin í samvinnu við geðlækni, ÓH og tengilið.

Umræður verða leiddar áfram af fræðslu um mismunandi einkenni athyglisbrests og helstu bjargráð. Einnig eru ýmsar æfingar kynntar með það að leiðarljósi að gera lífið léttara.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi er Sigríður Anna Einarsdóttir.

Scroll to Top