Athyglisbrestur: Miðlum hvert til annars

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmiðið með hópnum er að þátttakendur fái fræðslu og svo stuðning hver af  öðrum og auki innsæi sitt gagnvart athyglisbrestinum og lífinu með hann í farteskinu.

  • Þriðjudaga kl. 13.00 – 15.00 (4. hæð)

Að þátttakendur fái fræðslu og svo stuðning hver af  öðrum og auki innsæi sitt gagnvart athyglisbrestinum og lífinu með hann í farteskinu.

Umræður verða leiddar áfram af fræðslu um mismunandi einkenni athyglisbrests og helstu bjargráð. Einnig eru æfingar kynntar til þess að gera lífið léttara.

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi er Sigríður Anna Einarsdóttir.

Scroll to Top