Að vera í námi

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur verði betur undir það búnir að takast á við nám. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna JE.

  • Miðvikudaga kl.13.00 – 14.30 (3. hæð – Holtasóley)

Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um eftirfarandi:

– Skólaumhverfið

– Tímastjórnun

– Námstækni (námsaðferðir t.d. glósur, lestur)

– Vinnubrögð í námi

– Mikilvægi hreyfingar, næringar og svefns

– Aðstoð við nám (t.d. lengri próftími)

– Prófkvíða

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Sigríður Pétursdóttir og Elsa Sveinsdóttir.

Scroll to Top