Að sækja um starf

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur verði betur í stakkbúnir til að takast á við starfsumsóknarferlið sem auðveldi þeim að fá vinnu við hæfi.

  • Fimmtudaga kl. 9.00 – 10.30 (3. hæð – Holtasóley)

Að sækja um starf er námskeið fyrir þátttakendur sem eru að íhuga að fara á vinnumarkaðinn á næstunni. Í námskeiðinu verður farið yfir það sem þarf að hafa í huga við starfsumsóknir eins og:

Ferilskrágerð

  • Kynnt verður fyrir þátttakendum hvernig eigi að búa til ferilskrá og hvað þarf að huga að við gerð þess.

Kynningarbréf

  • Farið verður í gegnum hvernig kynningarbréf eigi að vera gerð og hvað skiptir máli að komi fram í þeim og af hverju.

Atvinnuauglýsingar

  • Kynnt verður fyrir þátttakendum hvar og hvernig eigi að leita að störfum við hæfi.

Réttindi og skyldur

  • Fræðsla verður um réttindi og skyldur starfsmanna á vinnumarkaði og hvað þurfi að hafa í huga því tengt.

Launaseðlar

  • Farið verður í gegnum og rýnt í launaseðla

Námskeiðið verður lokaður hópur og verður ekki hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinendur verða Benjamín Júlíusson og Alma Rún Vignisdóttir.

Scroll to Top