Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar
23. febrúar – 23. mars
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur verði betur í stakkbúnir til að takast á við starfsumsóknarferlið sem auðveldi þeim að fá vinnu við hæfi. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.
- Fimmtudaga kl. 9.00 – 11.30 (4. hæð)
Að sækja um starf er námskeið fyrir þátttakendur sem eru að íhuga að fara á vinnumarkaðinn á næstunni. Í námskeiðinu verður farið yfir það sem þarf að hafa í huga við starfsumsóknir eins og:
– Ferilskrágerð. Kynnt verður fyrir þátttakendum hvernig eigi að búa til ferilskrá og hvað þarf að huga að við gerð þess.
– Kynningarbréf. Farið verður í gegnum hvernig kynningarbréf eigi að vera gerð og hvað skiptir máli að komi fram í þeim og af hverju.
– Atvinnuauglýsingar. Kynnt verður fyrir þátttakendum hvar og hvernig eigi að leita að störfum við hæfi.
– Réttindi og skyldur. Fræðsla verður um réttindi og skyldur starfsmanna á vinnumarkaði og hvað þurfi að hafa í huga því tengt.
– Launaseðlar. Farið verður í gegnum og rýnt í launaseðla
Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Benjamín Júlíusson.