Að sækja um starf

Fyrir hverja: Alla þátttakendur Janusar endurhæfingar

29. september – 27. október

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur verði betur í stakkbúnir til að takast á við starfsumsóknarferlið sem auðveldi þeim að fá vinnu við hæfi. Námskeiðið er í umsjón starfsmanna Janusar endurhæfingar.

  • Fimmtudaga kl. 9.00 – 10.30 (4. hæð)

Að sækja um starf er námskeið fyrir þátttakendur sem eru að íhuga að fara á vinnumarkaðinn á næstunni. Í námskeiðinu verður farið yfir það sem þarf að hafa í huga við starfsumsóknir eins og:

– Ferilskrágerð. Kynnt verður fyrir þátttakendum hvernig eigi að búa til ferilskrá og hvað þarf að huga að við gerð þess.

– Kynningarbréf. Farið verður í gegnum hvernig kynningarbréf eigi að vera gerð og hvað skiptir máli að komi fram í þeim og af hverju.

– Atvinnuauglýsingar. Kynnt verður fyrir þátttakendum hvar og hvernig eigi að leita að störfum við hæfi.

– Réttindi og skyldur. Fræðsla verður um réttindi og skyldur starfsmanna á vinnumarkaði og hvað þurfi að hafa í huga því tengt.

– Launaseðlar. Farið verður í gegnum og rýnt í launaseðla

Námskeiðið er opinn hópur og verður hægt að skrá sig eftir að námskeið hefst. Skráning fer fram í samráði við tengilið og inn á Janus Manager. Leiðbeinandi verður Benjamín Júlíusson.

Scroll to Top